Upplýsingar
Sense 
Hlíðasmára 3
201 Kópavogur
Sími 585 3800
www.sense.is
sense@sense.is
Hlutverk Sense er þríþætt , að uppfylla þarfir viðskiptavina á sviði stafrænna lausna og búnaðar með því að einfalda notkun þeirra, bæta aðgengi og hámarka ávinning viðskiptavina af slíkum lausnum. Að sjá um þjónustu og dreifingu á vörumerkjum sínum um land allt. Að reka fyrsta flokks tækjaleigu þar sem hægt er fá ráðgjöf um tækja og tækni þarfir allt frá afmælisboðum til mörg þúsund manna tónleika og allt þar á milli.
Framtíðarsýn Sense er að vera leiðandi í dreifingu, ráðgjöf, hönnun og samþættingu stafrænna lausna og búnaðar.
Við hjá Sense vinnum að fjölbreyttum verkefnum og höfum það að markmiði að þarfir viðskiptavina séu höfð að leiðarljósi við val á lausnum og búnaði og að upplifun þeirra af samskiptum við Sense verði framúrskarandi.
Sense ráðgjöf og þjónusta vinnur með fyrirtækjum og einstaklingum að þróun, ráðgjöf og innleiðingu á hljóð- og myndbúnaði og stjórnkerfum.
Tækjaleiga Sense sérhæfir sig í tækniþjónustu og leigu á búnaði fyrir veislur, sýningar, ráðstefnur, fundi og tónleika af hvaða stærðargráðu sem er.