Mögulegt er að fá gistingu fyrir almenna gesti í Bláa Lóninu - lækningalind. Lækningalindin er staðsett í einungis 5 mínútna göngufjarlægð frá Bláa lóninu. Umgjörð lækningalindarinnar er engu lík - stórbrotin náttúra, orka og kyrrð. Lækningalindin er því tilvalinn staður fyrir þá sem vilja njóta þess að fá fullkomna slökun í einstöku umhverfi. Lækningalindin býður upp á nýtískulega hönnuð, björt og rúmgóð herbergi. Öll herbergi eru með sjónvarpi og internettengingu. Gestir hafa einnig aðgang að líkamsræktarsal.