Hótel Flúðir er í einu blómlegasta jarðræktar- og ferðaþjónustuhéraði landsins, steinsnar frá Reykjavík. Þar er að finna tvo mjög góða veislu- og fundasali. Á Flúðum er tilvalið að halda stefnumótunar- og vinnufundi fjarri ys og þys borgarinnar, en samt sem áður í hæfilegri nálægð við hana. Á hótelinu eru 32 nýtískulega innréttuð, parketlögð herbergi, með tveimur einbreiðum rúmum eða einu tvíbreiðu. Á öllum herbergjum er sími, hárþurrka sjónvarp, baðherbergi með sturtu.
Hjá okkur færðu góðan nætursvefn í afslöppuðu og notalegu umhverfi.