Icelandair Hótel Hengill er nýtt úrvalshótel sem opnaði sumarið 2008 en það er nálægt Þjóðgarðinum á Þingvöllum, sem er ein af mestu náttúruperlum Íslands. Hótelið er fallega staðsett við fjallsrætur Hengils, með stórkostlegu útsýni yfir Þingvallavatn og nálæg fjöll. Akstursleið frá Reykjavík að Icelandair Hótel Hengli er aðeins 30 mínútur.
Á Hótel Hengli eru 22 úrvals herbergi, öll með síma, sjónvarpi, útvarpi og þráðlausri internettengingu.
Frábært útsýni til fjalla er úr flestum herbergjum hótelsins. Aðgangur er ókeypis að heitum pottum, gufu og líkamsræktarherbergi. Herbergi hótelsins eru máluð í orkulitum og þar má einnig finna kristal saltlampa.