Upplýsingar
Hótel Hérað
Miðvangur 5-7
700 Egilsstaðir
Sími: 471 1500
Fax: 471 1501
herad@icehotels.is
www.icehotels.is
Hótel Hérað er yndislegt athvarf í hjarta Egilsstaða, hinum blómlega höfuðstað Austurlands. Gjörið svo vel að njóta alls þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða meðan á dvölinni stendur.

Hótelið er á þremur hæðum en það var stækkað um helming árið 2004 sem gefur okkur kost á að bjóða glænýja ráðstefnuaðstöðu með fullkomnum fundarbúnaði fyrir allt að 120 manns.

Að  auki er nóg rými til að njóta unaðssemda lífsins á fyrsta flokks veitingastað, þar sem m.a. er borin fram hreindýrasteik, og á barnum þar sem eru svalir fyrir sólarlagsunnendur. Við erum í 654 km fjarlægð frá Reykjavík en flugtíminn er 60 mínútur.