Upplýsingar
Hótel Loftleiðir
Við Hlíðarfót
101 Reykjavík 
Sími: 444 4500
Bókunarsími:  444 4000
gestamhll@icehotels.is
www.icehotels.is


Hótel Loftleiðum, eru boðið uppá öll nútíma þægindi og þjónustu sem vænta má á fyrsta flokks hóteli. Loftleiðir státar af 220 fallegum herbergjum, Lóni veitingastað hússins og bar, ásamt fjölda veislu- og ráðstefnusala. Loftleiðir er jafnframt eina hótel Reykjavíkur með innanhúss sundlaug og heitum nuddpotti á neðstu hæð hússins, og er aðgangseyrir frír fyrir hótelgesti. Hárgreiðslustofa, lítil líkamsræktaraðstaða og Dong Fang snyrti- og nuddstofa eru einnig á neðstu hæð hótelsins, ásamt stórglæsilegri gjafavöruverslun í anddyri. Þráðlaus nettenging er í boði gegn vægu gjaldi, auk aðgengi að tölvum í setustofu. Einnig er aðgangur að einstaklega fallegri setustofu á fjórðu hæð hótelsins í boði fyrir gesti í Deluxe, Art og Poet herbergjum hótelsins. 

Hótel Loftleiðir er staðsett í afar fallegu umhverfi, með Öskjuhlíðina annars vegar og Nauthólsvík hinsvegar í hlaðvarpanum. Um fimmtán mínútna gangur er inní miðbæ Reykjavíkur, en fyrir þá sem vilja spara sér sporin bjóðum við frítt skutl til og frá miðbæ fimm sinnum á dag.