Grand Hótel Reykjavík er er eitt helsta ráðstefnuhótel landsins með 314 herbergjum, 14 ráðstefnu- og veislusölum ásamt fyrsta flokks "a la carte" veitingastaðnum Brasserie Grand. Árið 2007 var hótelið stækkað með 14 hæða turni og nýrri og glæsilegri glerbyggingu sem tengir nýju bygginguna við þá eldri. Grand hótel Reykjavík er náttúruvænt hótel og er laust við alla rafsegulmengun. Á neðstu hæð hótelsins er Grand Spa þar sem er fullkomin heilsulind, líkamsrækt og snyrtistofa.
Hótelið er í rólegu umhverfi og stutt er í fögur útivistarsvæði Laugardalsins og göngu- og hjólastíga meðfram strandlengjunni. Skammt undan er iðandi mannlíf, veitingahús, verslanir og skemmtistaðir í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið býður upp á skutluþjónustu til miðborgarinnar nokkrum sinnum á dag.