Upplýsingar
Hótel Flúðir
Vesturbrún 1
 845 Flúðir
Sími:  486 6630
Bókunarnúmer:  444 4000
fludir@icehotels.is
www.icehotels.is
Hótel Flúðir er í einu blómlegasta jarðræktar- og ferðaþjónustuhéraði  landsins, steinsnar frá Reykjavík. Þar er að finna tvo mjög góða veislu- og fundasali. Á Flúðum er tilvalið að halda stefnumótunar- og vinnufundi fjarri ys og þys borgarinnar, en samt sem áður í hæfilegri nálægð við hana. 
Þann 24 júní tókum við í notkun nýjan og glæsilegan ráðstefnu-og fundarsal með stórfenglegu útsýni. Salurinn er búinn fullkomnustu tækjum: rafknúnu tjaldi 2,40m á breidd, skjávarpa, DVD, video, þráðlaus nettenging, þráðlaust hljóðkerfi, laser bendir. Salurinn er 90 m2 stækkanlegur í 120 m2. Salurinn tekur 34 manns á U-borði, 60-80 í skólastofu, 120 í bíó, 100 í móttöku.