Upplýsingar
Hótel Hamar
310 Borgarnes
Sími: 433 6600
Fax: 433 6601
hamar@icehotels.is
www.icehotels.is


Hótel Hamar er þægilegt hótel á rólegum stað í þjóðleið rétt utan við Borgarnes. Hér er hægt að njóta kyrrðar í sveitinni, en öll þjónusta er þó innan seilingar. Útsýnið er stórbrotið og veitingastaður hótelsins hefur getið sér gott orð fyrir frábæran mat og faglega þjónustu. Hótelið er rekið af hjónunum Unni og Hirti sem bjóða ykkur velkomin allan ársins hring. 
Það er sannkallaður fundarfriður í Borgarfirðinum og einungis klukkustundar akstur úr höfuðborginni.

Hótel Hamar hefur upp á tvo fundarsali að bjóða;  Stóra Hamar sem tekur allt að 40 manns og Litla Hamar sem tekur 8 manns. Framúrskarandi þjónusta, þægilegt umhverfi og glæsilegt útsýni er hluti af því sem fylgir fundarhöldum á Hótel Hamar.

Einnig bjóðum við upp á veisluþjónustu og fyrir allt að 100 manns.


Helsti tækjabúnaður:
  • Sjónvarp
  • DVD spilari
  • Myndbandstæki 
  • Flettitöflur
  • Sími/Fax
  • Skjávarpi
  • Tölva
  • Þráðlaust net

Ef þörf er á öðrum búnaði getur hótelið útvegað hann.

Á loknum fundi er tilvalið að bregða sér út á golfvöll og efla liðsandann eða skella sér í heitu pottana og liðka málbeinin