Hótel Hengill er nýtt úrvalshótel sem opnaði sumarið 2008 en það er nálægt Þjóðgarðinum á Þingvöllum, sem er ein af mestu náttúruperlum Íslands. Hótelið er fallega staðsett við fjallsrætur Hengils, með stórkostlegu útsýni yfir Þingvallavatn og nálæg fjöll. Akstursleið frá Reykjavík að Icelandair Hótel Hengli er aðeins 30 mínútur.
Innréttingar og listaverk hótelsins tengjast bæði krafti og orku. Ráðstefnuhópar geta nýtt sér svokallaða orkufundi og orkuveislur eftir árangursríka fundi.