Hótel Hérað er yndislegt athvarf í hjarta Egilsstaða, hinum blómlega höfuðstað Austurlands. Gjörið svo vel að njóta alls þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða meðan á dvölinni stendur.
Hótelið er á þremur hæðum en það var stækkað um helming árið 2004 sem gefur okkur kost á að bjóða glænýja ráðstefnuaðstöðu með fullkomnum fundarbúnaði fyrir allt að 120 manns.
Að auki er nóg rými til að njóta unaðssemda lífsins á fyrsta flokks veitingastað, þar sem m.a. er borin fram hreindýrasteik, og á barnum þar sem eru svalir fyrir sólarlagsunnendur. Við erum í 654 km fjarlægð frá Reykjavík en flugtíminn er 60 mínútur.
Hótel Hérað býður upp á margvíslega þjónustu við ráðstefnuhaldara. Á hótelinu eru 4 fundasalir, mjög vel búinn salur sem rúmar 60 - 100 manns, einnig skiptanlegir salir sem rúma frá 12 til 100 manns. Að sjálfsögðu er allur helsti tækjabúnaður til reiðu hér. Starfsfólkið er alltaf til staðar til að tryggja að þinghald, ráðstefnur og veitingar gangi hnökralaust fyrir sig.
Salirnir henta einnig vel fyrir brúðkaup, fermingarveislur, starfsmannaskemmtanir, kynningar og hanstélsteiti.