Staður þar sem náttúrufegurðin lætur engan ósnortinn auk þess sem veðurfarið er með því besta sem þekkist á Íslandi. Hótel Klaustur er þriggja stjörnu hótel á yndislegum stað. Í boði eru 57 herbergi; 36 standard (10 einbýli), 20 superior og ein svíta.
Á Hótel Klaustri tökum við vel á móti þér hvort sem þú ert að koma með hóp á árshátíð, gleðjast með starfsfélögum, saumaklúbbnum eða vinahópnum, halda upp á afmælið þitt eða láta dekra við þig og þína í mat og drykk.
Hótelið á Kirkjubæjarklaustri er kjörið til fundarhalda. Aðalsalurinn tekur allt að 150 manns í sæti og minni salirnir henta sérlega vel fyrir einkasamkvæmi og fundi. Auk hótelsalanna stendur mönnum til boða að fá til afnota fundarsalinn í félagsheimilinu á Klaustri.