Ferðaskrifstofan Atlantik býr að 30 ára reynslu í ferðaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið er leiðandi í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa og í skipulagningu hvataferða, auk viðburða, vörukynninga, funda og ráðstefna. Atlantik hefur yfir að ráða mjög sérhæfðum hugbúnaði til vinnslu bæði hvataferða og ráðstefna. Hjá fyrirtækinu starfa 15 manns. Atlantik er þekkt fyrir áreiðanleika, hátt þjónustustig og framúrskarandi þekkingu og reynslu starfsmanna. Sérhæfing starfsmanna Atlantik nær allt frá því að skipuleggja dagsferðir fyrir farþega skemmtiferðaskipa, til mörg hundruð manna hvataferða, þar sem ótrúlega fjölbreytt afþreying er í boði.
Atlantik er aðili að Euromic samtökunum, sem eru samtök hágæða hvataferðaskrifstofa í Evrópu ásamt völdum skrifstofum utan Evrópu. Atlantik hefur því reynsluna og viðskiptatengslin sem eru nauðsynleg til að geta boðið íslenskum fyrirtækjum og hópum uppá skipulagningu hvataferða utan Íslands, með samvinnu við aðildarfélög okkar innan Euromic. Auk aðilar að Ráðstefnuskrifstofu Íslands og Euromic erum við aðilar að Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF), Cruise Iceland, IATA, Destinations Unlimited, Travel Contacts, Starcite og The World Leading Ground Operators.