Upplýsingar
Iceland ProTravel ehf
Ármúli 15
108 Reykjavik
Sími  5103600
Fax: 5103601
www.icelandprotravel.is    
memo@icelandprotravel.is  
Iceland ProTravel er eitt af leiðandi fyrirtækjum í ferðaþjónustu hér á landi og býr yfir bæði þekkingu og áralangri reynslu á því sviði. Við höfum tileinkað okkur að skapa og vinna með ferskar hugmyndir með viðskiptavinum okkar. Skrifstofan hér á landi vinnur í nánu og styrku samstarfi við söluskirfstofur okkar í Þýskalandi, Sviss, Englandi og Svíþjóð. Alþjóðlegur hópur starfsmanna okkar hefur margra ára reynslu í að undirbúa og framkvæma einföldar og flóknar ferðir á samkeppnishæfu verði. Við getum boðið texta og upplýsingar á nokkrum tungumálum. Ef þörf er á aðstoð við kynningar á ferðatilhögun, getur starfsfólk okkar á erlendri grund gert það, með litlum fyrirvara. Styrkur okkar liggur í sveigjanleika, skapandi hugmyndavinnu og samkeppnishæfum verðum. Við bjóðum upp á skjóta og skilvirka þjónustu. Þjónustusími okkar er opinn allan sólarhringinn, allan ársins hring. Viðskiptavinir okkar frá liðnum árum koma frá ýmsum löndum og frá fyrirtækjum í bílaframleiðslu, lyfjaframleiðslu, tryggingarfélög, alþjóðlegir bankar og mörgum öðrum sviðum á alþjóðlegum vettvangi.