Iceland Travel er leiðandi fyrirtæki í að veita faglega aðstoð, ráðgjöf og þjónustu, býður nú upp á heildarlausn fyrir fyrirtæki hvort sem um er að ræða skipulagningu ráðstefna, funda, viðburða, viðskiptaferða eða hvataferða á Íslandi eða erlendis. Iceland Travel er eitt af dótturfyrirtækjum Icelandair Group með traustan grunn og öflugan bakhjarl sem tryggir okkar viðskiptavinum bestu þjónustuna og hagstæðasta verðið hverju sinni.
Þjónusta ráðstefnudeildar tryggir eins og kostur er hnökralausa framkvæmd, sparar skipuleggjendum ráðstefnu ómælda vinnu, tíma og gefur þeim kost á að sinna faglega þættinum.
Viðburðarstjórnun er eitt af öflugustu markaðstækjum samtímans, óháð stærð fyrirtækis eða fjölda starfsmanna. Iceland Travel viðburðardeild veitir fyrirtækjum, stofnunum og samtökum faglega ráðgjöf og þjónustu við skipulagningu, framkvæmd og uppsetningu á stórum sem smáum viðburðum.
Með tilkomu VITA viðskiptalífs geta viðskiptavinir okkar tryggt bestu ferðaáætlun og hagstæðustu fargjöldin hverju sinni.
Hvataferðateymi Iceland Travel hefur að skipa vel þjálfuðu starfsfólki með margra ára reynslu í að skipuleggja og stjórna sérhæfðari ferðum og skapa þá umgjörð sem þarf til að skila árangri. Okkar markmið er fyrst og fremst að vera skapandi og að leggja metnað í öll verkefni. Við lítum á hvern viðskiptavin sem tækifæri til að gera enn betur.