Ferðaskrifstofan Íslandsflakkarar eru hluti af Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og hefur tæpa 20 ára reyslu af skipulagningu ferða um náttúru Íslands. Hvataferðir eru stolt Íslandsflakkara og hafa þá sérstöðu að breyttir Land Rover jeppar eru aðalfarartækin. Fyrirtækið sérhæfir sig í margs konar afþreyfingarferðum og hópeflisleikjum og útfærir hvataferðir með menningarafinn og nálægðina við náttúruna að leiðarljósi. Að sjá þátttakendum fyrir einstakri upplifun er okkar markmið og því leggjum við áherslu á sérkenni Íslands og framreiðum ferðirnar í jöklaumhverfi, innan um hraunbreiður og á háhitasvæðum svo fátt eitt sé nefnt. Við setjum saman ferðir sem sameina afþreyingu, lúxus og afslöppun og sérsníðum eftir óskum hvers og eins með ríka áherslu á menningarafleifð þjóðarinnar. Jöklagöngur og ísklifur, hestaferðir og hellaskoðun, fjórhjól eða snjósleðar – ímyndunaraflið hefur engin takmörk og ekki heldur útfærslumöguleikar okkar.
Íslandsflakkarar hafa yfir að ráða afar hæfu fólki með útivistarástríðu og áralanga reynslu af samsetningu og útfærslu hvataferða. Starfsfólk okkar finnur fyrir þig rétta hótelið, skemmtilegustu fararskjótana, sérstæðustu afþreyinguna og veit hvernig kitla á bragðlaukana. Hvort sem um er að ræða styttri eða lengri ferðir, að sumri eða vetri, þá munum við finna það sem hentar þér!
Íslandsflakkarar, í samfloti með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, hlutu umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2009 fyrir umhverfisstefnu sína og starfsmenntaviðurkenningu Samtaka aðila í ferðaþjonustu (SAF) árið 2010 fyrir þjálfunarferla og endur- og símenntun leiðsögumanna.