Mountaineers of Iceland – Fjallamenn, er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki starfrækt frá 1996 sem sérhæfir sig í jeppa og snjósleðaferðum á suð-vestur hluta landsins.
Við bjóðum upp á opnar dagsferðir, hálfsdagsferðir og kvöldferðir sem og sérsniðnar ferðir fyrir hópa og einstaklinga.
Við leggjum einnig mikla áherslu á hvataferðir og getum boðið upp á ýmsa skemmtilega afþreyingu eins og snjósleða, snjóleiki, hellaferðir, flúðasiglingar, hestaferðir og fjórhjól. Sérútbúnir 4wd jeppar gera okkur kleift að komast upp á jökla og afskekta staði og fjallvegi sem aðrir bílar komast ekki.
Við eigum fjallaskála bæði vestan, og austan megin við Langjökul þar sem við erum með snjósleðana okkar. Það fer eftir árstíma hvorum megin á jöklinum við erum staðsett.
Á skrifstofunni okkar erum við með starfsfólk sem hefur mikla reynslu af því að útbúa skemmtilegar ferðir fyrir stóra sem og smáa hópa. Við leggjum mikið upp úr góðri þjónustu og skjótum svörum.