Practical er leiðandi viðburða- og ferðaþjónustu fyrirtæki með ferðaskrifstofuleyfi frá Ferðamálastofu og er auk þess meðlimur í Samtökum Ferðaþjónustunnar og Ráðstefnuskrifstofu Íslands. Hvort sem um er að ræða viðskiptaferð, hvata- eða hópeflisferð, starfsdag fyrirtækisins eða hvers kyns viðburði þá er starfsfólk Practical til þjónustu reiðubúið. Practical býður einungis upp á sérhannaða þjónustu fyrir stóra sem smáa hópa, þar sem þarfir hópsins eru hafðir að leiðarljósi. Við leggjum mikla áherslu á persónulega og góða þjónustu, sem og gott starfsfólk og sérfræðinga með mikla reynslu á sínu sviði.