Upplýsingar
Reykjavík Incentives/Kynnisferðir
Vesturvör 34
200 Kópavogur
Sími: 5805411
Fax:  564 4776
incentives@ri.is  
www.ri.is
Hvataferðir Kynnisferða eru til reiðu fyrir fyrirtæki og viðskiptavini þeirra  
·        Almenn siðlögmál og –reglur gilda í samskiptum við viðskiptavini.
 ·       Heiðarleiki, réttmæti og sanngirni eru viðmið í öllum ákvörðunum.
·        Hver starfsmaður sem og starfsmenn í heild haga sér þannig að það sé bæði viðskiptavini og félaginu til sóma.
 ·       Samkeppnisaðilar eru ekki baktalaðir.
 ·       Komið er fram af sömu virðingu við alla viðskiptavini.
 ·       Sambærileg þjónusta er innt af hendi við alla viðskiptavini.
·        Starfsmenn eru hvattir áfram í þeirri viðleitni að gera alltaf sitt besta – og helst betur.
·        Kappkostað er að veita viðskiptavinum hágæða þjónustu, bæði til orðs og æðis.
·        Verndun náttúruauðlinda og almenn náttúruvernd er í hávegum höfð hjá fyrirtækinu, sem notar endurnýtta olíu (bio-diesel) á rútur sínar.  

Tilgangur vel heppnaðra hvataferða er að skapa liðsheild, hvetja starfsmenn áfram og bæta samskipti stjórnenda og almennra starfsmanna.  Stjórnendur gera sér æ gleggri grein fyrir því hversu mikið umbun af þessu tagi hefur að segja fyrir starfsmenn, enda bæði hægt að hafa af hvataferðum gagn og gaman. Að þessu leyti helgar tilgangurinn meðalið, enda er sama hvort ætlunin með ferðinni er að ná einhverju sameiginlegu markmiði eða setja nýja vöru á laggirnar. Til að ferðirnar takist sem best og nái tilgangi sínum, verður að huga að fjölmörgum atriðum. Skipulag ferðanna er lykilatriði að því að allt gangi upp og að vel takist til, það á bæði við um fyrir, eftir og meðan á ferð stendur.  Hvataferðir eiga mestmegnis að vera skemmtiferðir, en samtímis geta þær verið fræðandi og síðast en ekki síst þjónað þeim tilgangi að hvetja starfsmenn áfram til góðra verka.  
Velkomin(n) ...
á ystu nöf
í ysinn og þysinn  
í ævintýraleitina  
í spenninginn  
í æsinginn  
í  teitið  
í veisluna  
í gleðina  
út í náttúruna  
að finna kraftinn                                                                                                                                         ......til hvataferða Kynnisferða!