Terra Nova Incentives er hluti Terra Nova Iceland, einnar stærstu ferðaskrifstofu á Íslandi. Við búum yfir meira en 30 ára reynslu af skipulagningu ferða til Íslands. Í gegnum árin hefur fyrirtækið byggt upp mikla reynslu og getið sér orðspor fyrir gæði og góða þjónustu.
Það er hægt að njóta Íslands allt árið um kring. Afþreying yfir vetrartímann getur til dæmis verið; jeppaferðir, snjósleðaferðir, ísklifur og hestaferðir. Á sumrin er hálendið frábært til ferðalaga, alls kyns ævintýraleg afþreying er í boði, svo sem: fljótasiglingar, hestaferðir, fjórhjólaferðir og fjallgöngur af ýmsu tagi.
Við getum boðið upp á mikið úrval afþreyingar sem gera hvataferðina þína ógleymanlega. Hugmyndaflug okkar og reynsla ásamt góðu samstarfi við birgja, gera okkur kleift að útvega viðskiptavinum okkar ferð í hæsta gæðaflokki.
Við bjóðum ykkur velkomin til Íslands!