Hjá Broadway starfa yfir 150 manns, við margs konar þjónustu, mat- reiðslu, skrifstofustörf og stjórnun, auk þess sem fjöldi tónlistarfólks og annarra listamanna starfar þar allt árið um kring. Stefna Broadway er að vera leiðandi á Íslandi í framleiðslu á skemmti- og leiksýningum og að bjóða gestum sínum "kvöldverð og sýningu" ásamt því að taka að sér glæsilegar veislur og bjóða viðskipta-vinum heildarþjónustu vegna veislna, ráðstefna og funda. Stefna Broadway er að nota ávallt fyrsta flokks hráefni í allar veitingar, bæði mat og drykkjarföng.