Lækjarbrekka er sígildur veitinga-staður í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er eitt af elstu húsum bæjarins og á sér forvitnilega sögu, en hér hefur verið veitingarekstur í tvo áratugi. Við leggjum metnað okkar í að matreiða ljúffenga rétti úr fyrsta flokks hráefni og veita góða þjónustu. Markmið okkar er að allir gestir fari héðan ánægðir.