Lava Restaurant & Bar býður einstaka upplifun. Kokkarnir leggja áherslu á að nota ferskt íslenskt hráefni og fjölbreytti matseðillinn inniheldur allt frá léttum réttum til sælkeramáltíða. Staðurinn er byggður inn í klett og er einn veggurinn náttúrulegt hraun, sem eykur á sérstöðu hans. Glerstigi leiðir gesti á Lava Bar á annarri hæð þar sem þeir geta notið þess að fá sér drykk og slaka á í aðlaðandi umhverfi. Þak veitingastaðarins er útsýnispallur þar sem sést yfir Bláa lónið og fallegt umhverfi þess.