Á VOX starfar teymi töframanna sem laðar fram það besta úr norrænu hráefni og umhverfi. Yfirmatreiðslumeistarinn Stefán Viðarsson er hugmyndaríkur og þaulreyndur, hann leggur áherslu á glæsilegt útlit rétta og pottþétta uppsprettu hráefnis.
Páll Hjálmarsson Veitingarstjóri VOX veit að svangir þurfa aðhlynningu. Hann hefur innleitt afslappaða stemmningu í þjónateymið, viðmót sem miðar að því að upplifun gesta verði eftirminnileg fyrir fleira en bragðgæðin.
Þríkrýndur Vínþjónn ársins á Íslandi, Elísabet Alba Valdimarsdóttir, er skarpur smakkari og enn betri ráðgjafi. Með einn stærsta og metnaðarfyllsta vínlista landsins að vopni sér hún til þess að vín og matur fari ævinlega vel saman í maga gesta.