Hlutverk gestgjafans
Það getur vaxið manni í augum að taka að sér að falast eftir því að halda ráðstefnu og sjá um allt það sem því fylgir en það er enginn ástæða til þess að standa í því ein/n.
Ókeypis hjálp og aðstoð býðst
Eitt af megin markmiðum Ráðstefnuskrifstofa Íslands er að vekja áhuga Íslendinga í alþjóðasamskiptum á að halda ráðstefnur og fundi sinna fagfélaga hér á landi. Innan vébanda RSÍ eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í öllum þeim þáttum sem á einn eða annan hátt koma að ráðstefnunni eða fundinum og öll hafa þau yfir að ráða margra ára reynslu og þekkingu á sínu sviði. Ráðstefnuhótel, hótel, fundaraðstaða, fagskipuleggjendur, samgöngu- og afþreyingarfyrirtæki eru meðal þeirra og RSÍ veitir allar upplýsingar um þau. Við aðstoðum þig, gestgjafann, að finna hentugan stað, fagskipuleggjanda og annað sem til þarf til þess að þú getir boðið þínu félagi að halda næstu ráðstefnu og/ eða fund hérlendis.
Okkar þjónusta felst í:
Leggja fram tillögur er varðar viðkomandi ráðstefnu og/eða viðburð, vísa á fagskipuleggjendur sem gera væntanlegum gestgjafa tilboð í framkvæmd og skipulagningu viðburðarins Útvegar stuðningsbréf opinberra aðila/stofnana/hagsmunaaðila sé þess óskað Annast bréfaskriftir við viðkomandi fagfélag/samtök sé þess óskað Veitir tölfræðilegar upplýsingar og listar upp staðfestar ráðstefnur hér á heimsíðu félagsins
Útvegar kynningarefni
- Kynningarbæklingur
- Myndband
- Almennt landkynningarefni
Endilega hafðu samband og sjáðu hvort að við getum ekki auðveldað þér leikinn!