Hlutverk Ráðstefnuskrifstofu Íslands
Hlutverk Ráðstefnuskrifstofu Íslands er að markaðssetja Ísland á alþjóðamarkaði sem ákjósanlegan áfangastað til ráðstefnuhalds og hvataferða. Auk þess ber skrifstofunni að vekja áhuga Íslendinga í alþjóðasamskiptum á að halda ráðstefnur og fundi sinna fagfélaga hér á landi.
Að baki skrifstofunni standa Ferðamálastofa, Reykjavíkurborg, Icelandair, flest leiðandi hótel á sviði ráðstefnuhalds og hvataferða auk annarra fyrirtækja, s.s. afþreyingarfyrirtæki, veitingahús og fleiri sem hagsmuna eiga að gæta við ráðstefnuhald og móttöku hvataferða
Frá því haustið 1997 hefur starfsemi Ráðstefnuskrifstofu Íslands verið hýst hjá Ferðamálastofu sem jafnframt hefur séð um rekstur hennar samkvæmt samkomulagi við stjórn félagsins. Framkvæmdastjóri skrifstofunnar er Sólveig Lilja Einarsdóttir.
Stjórn félagsins frá aðalfundi 2011 til aðalfundar 2012 skipa:
Addý Ólafadóttir
Ólöf Ýrr Atladóttir
Sif Gunnarsdóttir
Ólafur Torfason
Kristín Sif Sigurðardóttir
|
Icelandair
Ferðamálastofa
Reykjavíkurborg
Grand Hótel
Atlantik
|